Fara beint í efni
No Limits

Við smíðum hugbúnaðinn sem aðrir segja of flókinn.

Sérsniðin kerfi, vefsíður og öpp. Við sjáum um allt ferlið, frá fyrstu hugmynd að hýsingu og rekstri.

  • Sérsmíðaður hugbúnaður
  • Vefsíður
  • Öpp fyrir iOS og Android
  • Vefverslanir
  • Samþættingar og API
  • Hönnun
  • Hýsing
  • Rekstur og viðhald

Það sem við smíðum

Fjórar leiðir að sama markmiði: hugbúnaði sem virkar og heldur áfram að virka.

  • Flókinn hugbúnaður

    Sérsmíðuð kerfi þar sem tilbúnar lausnir duga ekki. Við tengjum saman eldri kerfi, vinnum með stór gagnasöfn og smíðum vefþjónustur sem standast álag.

    • Sérsmíðuð kerfi
    • Samþættingar og API
    • Gagnavinnsla
    • Innri kerfi og stjórnborð
  • Vefsíður

    Hraðir og aðgengilegir vefir sem auðvelt er að uppfæra. Frá fyrirtækjavef að vefverslun með greiðslugátt.

    • Fyrirtækjavefir
    • Vefverslanir
    • Vefumsjónarkerfi
    • Leitarvélabestun
  • Öpp

    Öpp fyrir iPhone og Android sem fólk vill nota. Við sjáum líka um útgáfu í App Store og Google Play.

    • iOS og Android
    • Innskráning og tilkynningar
    • Tenging við núverandi kerfi
    • Útgáfa og uppfærslur
  • Allur pakkinn

    Einn samningur, eitt teymi. Hönnun, smíði, hýsing, lén, tölvupóstur og viðhald, svo þú þurfir ekki að halda utan um fimm birgja.

    • Hönnun og vörumerki
    • Hýsing og lén
    • Öryggi og afritun
    • Viðhald og þjónusta

Verkefni sem við höfum smíðað

Nokkrir vefir sem eru í loftinu í dag. Smelltu til að skoða þá.

  • Rekstrarkerfi fyrir gististaði

    GetOmne

    Hugbúnaðarkerfi fyrir rekstur gististaða. Það tengir saman bókanir, þrif, lager og mínibar-sölu í eitt rekstrarlag — með verklistum, myndastaðfestingu, QR-mínibar og bókunargreiningu.

    • Sjálfvirk þrif
    • Lager og birgðir
    • QR-mínibar
    • Bókanir og rekstur
    • Bókunargreining
    Skoða vefinngetomne.com
  • Verslunarmiðstöð í Reykjavík

    Faxatorg

    Vefur fyrir verslunarmiðstöðina í Faxafeni 10. Gestir finna verslanir og þjónustu á gagnvirku korti af húsinu, sjá vörur úr netverslunum leigutaka og geta kynnt sér laus rými til leigu.

    • Gagnvirkt kort af húsinu
    • Verslanaskrá
    • Laus rými til leigu
    • Vörur úr netverslunum
    • Ljóst og dökkt útlit
    Skoða vefinnfaxatorg10.is
  • Hótel á Akureyri

    Bryggjan Boutique Hotel

    Vefur fyrir nýtt boutique-hótel við höfnina á Akureyri. Herbergjasíður, myndband af hótelinu og bókunarhnappar tengdir beint við bókunarkerfi hótelsins.

    • Tenging við bókunarkerfi
    • Herbergjasíður
    • Myndband
    • Vafrakökustillingar
    Skoða vefinnbryggjan.is

Eitt teymi fyrir alla stæðuna

Flest verkefni stranda á skilunum milli aðila: hönnuðurinn skilar, forritarinn túlkar og hýsingaraðilinn veit ekki af neinu. Hjá okkur hannar, smíðar og rekur sama fólkið lausnina þína.

  1. Hönnun og notendaupplifun
  2. Vefur og öpp
  3. Bakendi og samþættingar
  4. Gögn og gagnagrunnar
  5. Hýsing, öryggi og rekstur

Hvernig við vinnum

  1. Greining

    Við byrjum á að skilja reksturinn þinn og hvað lausnin þarf að gera. Þú færð skýra áætlun og verðmat.

  2. Hönnun

    Við hönnum viðmótið og prófum það með raunverulegum notendum áður en ein lína af kóða er skrifuð.

  3. Smíði

    Við smíðum í stuttum lotum og sýnum þér virkandi útgáfu reglulega, svo ekkert komi á óvart.

  4. Rekstur

    Eftir að lausnin fer í loftið hýsum við hana, vöktum og bætum, eins lengi og þú þarft.

Segðu okkur frá verkefninu

Hvort sem þú ert með fullmótaða hugmynd eða bara vandamál sem þarf að leysa. Við höfum samband fljótlega.

Eða sendu okkur póst
info@nolimits.is
Hvað vantar þig? (valfrjálst)